Andleg næring
Ég lærði fyrst á kassagítar af Dóra vini mínum, en það var árið 1983 sem ég heyrði plötuna Discipline með King Krimson. Eftir það varð ekki aftur snúið, bassaleikari skyldi ég verða og feta í fótspor Tony Levin.
Síðan þá hef ég spilað á bassa (meira af mætti en getu) og að mestu kennt mér sjálfur með því að stúdera Levin. Þó ber að minnast einnar annar í stúdíu hjá Jóni Rafnssyni, þeim mikla snillingi, sem reyndar kenndi mér meira um að spila tónlist en endilega að spila á bassann sem slíkan. Ég hafði mjög gott af því. Ég hef spilað með ýmsum hljómsveitum, flestum lítt þektum og alltaf haft það að leiðarljósi að spila með fólki sem vill skapa eittvað nýtt. Meðal sveita sem ég hef spilað með eru: Ekkert, Skuggarnir,Tvö Dónaleg Haust, Doubious og Blúsþrjótar en sú síðastnefnda var mjög virk í blúslífi í Reykjavík kringum 2000.
Þessa dagana er ég að spila undir hjá Gospelkór Akureyrar með gospelhljómsveitinni ,,Officer and Gentlemen" . DR. Möller er samheiti yfir Kristján Edelstein, Hauk Pálmason og sjálfan mig. Við hittumst annað slagið til þess að vinna frumsamið efni. Auk þess fer ég endrum og sinnum í stúdíó og spila alls konar tónlist inn á plötur og hér að neðan er að ég held nokkuð tæmandi listi listi yfir þær plötur sem eg hef spilað inn á.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home